Ráðherra taki á skilaskussum

Dómsmálaráðuneytið.
Dómsmálaráðuneytið. mbl.is/Ófeigur

Ríkisendurskoðun hyggst fara þess á leit við dómsmálaráðherra að hann beiti sér fyrir lögfestingu sektarákvæðis sem nær yfir sjálfseignarstofnanir sem skila ekki ársreikningum.

Ríkisendurskoðun hefur birt yfirlit um ársreikninga staðfestra sjóða og sjálfseignarstofnana vegna ársins 2016. Í árslok 2017 var 731 sjóður og stofnun á skrá en í byrjun desember höfðu 364 sjóðir eða stofnanir skilað ársreikningi fyrir rekstrarárið 2016.

364 sjóðir eða stofnanir hafa ekki skilað Ríkisendurskoðun ársreikningi fyrir rekstrarárið 2016. Þar af eru 22 sjóðir eða stofnanir sem ekki hafa skilað ársreikningi í áratug eða lengur og 96 sem ekki hafa skilað ársreikningi í fimm til tíu ár. Ekki er vitað um síðustu skil 56 sjóða eða stofnana en margar þeirra hafa aldrei skilað ársreikningi.  

Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar segir að þrátt fyrir árvissar ítrekanir Ríkisendurskoðunar við forsvarsmenn staðfestra sjóða og sjálfseignarstofnana undanfarin ár hafi skil ekki batnað. Hafa þurfi í huga að stjórnvöld hafi ekki sambærilegar heimildir til að beita refsiviðurlögum og t.d. ársreikningaskrá RSK. 

„Af þessum sökum hyggst stofnunin fara þess á leit við dómsmálaráðherra að hann beiti sér fyrir því að lögfest verði efnislega sambærilegt sektarákvæði og mælt er fyrir um í 42. gr. laga nr. 33/1999 um sjálfseignarstofnanir, sem stunda atvinnu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK