Sigrún Ingibjörg bætist í hóp eigenda hjá Rétti

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir er einn eigenda lögmannssstofunnar Réttar.
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir er einn eigenda lögmannssstofunnar Réttar. Ljósmynd/Aðsend

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar, hefur bæst í hóp eigenda hjá lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners.

Sigrún lauk námi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2012 og öðlaðist lögmannsréttindi árið 2013. Á árunum 2011- 2015 starfaði hún hjá Forum lögmönnum. Hún lauk LL.M.-gráðu frá Harvard Law School árið 2016 og hóf í framhaldinu störf hjá Rétti. Helstu starfs­svið Sigrúnar eru alþjóðlegur fyrirtækjaréttur, Evrópuréttur, skaðabótaréttur, persónuvernd og svo fjölmiðlaréttur.

Samhliða lögmannsstörfum er Sigrún formaður flóttamannanefndar og stundakennari í Evrópurétti við Háskóla Íslands. Á síðasta kjörtímabili var hún varaþingmaður Viðreisnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK