Gengi íslensku krónunnar hefur verið skráð að nýju hjá Seðlabanka Evrópu eftir rúmlega níu ára fjarveru.
Þetta kemur fram á heimasíðu Seðlabanka Íslands en þar segir að gengi krónunnar hafi verið afskráð af gjaldmiðlaborði Seðlabanka Evrópu í desember 2008.
Þegar krónan var fjarlægð af gjaldmiðlaborðinu stóð gengi hennar í 290 krónum gagnvart evru en það hefur síðan hækkað og nemur nú 125 krónum gagnvart evru.