Sigurlilja ráðin hagfræðingur Samorku

Sigurlilja Albertsdóttir.
Sigurlilja Albertsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Sigurlilja Albertsdóttir hefur verið ráðin hagfræðingur Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja.

Sigurlilja hefur starfað hjá utanríkisráðuneytinu sem sérfræðingur á sviði stefnumótunar og fjármála frá árinu 2016 og þar áður sem sérfræðingur þjóðhagsútreikninga á efnahagssviði hjá Hagstofu Íslands frá árinu 2010, að því er segir í tilkynningu.

Þá hefur hún einnig starfað sem sérfræðingur við Hagstofu EFTA í Lúxemborg. Sigurlilja er með B.Sc. í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. í þjóðhagfræði frá Háskóla Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK