Olaf Rogge til liðs við Fossa

Olaf Rogge.
Olaf Rogge. Ljósmynd/Aðsend

Olaf Rogge, sérfræðingur í alþjóðlegum fjárfestingum, gengur til liðs við ráðgjafarnefnd Fossa markaða. 

Frá 1984 byggði Rogge upp fyrirtækið sem hann stofnaði undir eigin nafni, Rogge Global Partners Ltd. Félagið sérhæfði sig í stýringu fjárfestinga á alþjóðlegum vaxtamörkuðum og var með yfir 60 milljarða Bandaríkjadala í stýringu áður en kom að sölu þess til Allianz Global Investors árið 2016.

Áður hafði hann gegnt margvíslegum stjórnunarstöðum hjá svissneska bankanum Lombard Odier og hjá LF Rothschild, Unterberg, Towbin. Olaf Rogge, sem er fæddur 1945, útskrifaðist með réttindi sem bankastjórnandi úr háskólanum í Hamborg í Þýskalandi árið 1973.

Í tilkynningu frá Fossum kemur fram að Olaf muni styðja félagið í tengslum við vaxandi þjónustu þess á erlendum mörkuðum og er haft eftir Haraldi Þórðarsyni forstjóra að Olaf muni styrkja áframhaldandi vöxt og uppbyggingu á þjónustu Fossa á alþjóðavísu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK