Sextíu í sérhæfðri öryggisþjónustu á Keflavíkurflugvelli

Starfsmenn AVIÖR að störfum á Keflavíkurflugvelli.
Starfsmenn AVIÖR að störfum á Keflavíkurflugvelli.

Öryggismiðstöðin hefur gert samninga við öll stærstu flugfélögin sem fljúga um Keflavíkurflugvöll um mjög sérhæfða öryggisþjónustu.

Umfang verkefnisins er mikið og hefur fyrirtækið því stofnað sérstakt svið utan um þennan rekstur undir nafninu AVIÖR, segir í fréttatilkynningu. AVIÖR var sett á laggirnar í lok síðasta árs.

„Við þjónustum flugfélög og hverja þá aðila sem þurfa aukalega öryggisþjónustu vegna sérkrafna sem ganga lengra en Evrópureglugerðir segja til,“ er haft eftir Ómari Brynjólfssyni, framkvæmdastjóra AVIÖR, í fréttatilkynningunni. „Við erum í góðu samstarfi við ISAVIA sem tók þá ákvörðun að bjóða ekki upp á þessa aukaþjónustu þar sem það fellur fyrir utan lögbundið hlutverk þeirra.“ 

Hjá AVIÖR starfa nú um 60 starfsmenn og gera áætlanir ráð fyrir að sá fjöldi fari vel yfir 100 þegar nálgast háannatímabil á flugvellinum í sumar. AVIÖR er með skrifstofur í Reykjanesbæ og starfsaðstöðu á Keflavíkurflugvelli.

Ómar segir að þetta hafi byrjað með verkefnum á vegum Air Canada í júní 2017. „Í framhaldinu var samið við ISAVIA um svokallaða SSSS-leit (secondary security selection screening) fyrir íslensku flugfélögin. Við skrifuðum síðan í lok árs 2017 undir heildarsamninga beint við Icelandair og WOW um alla sérhæfða öryggisþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Við sinnum einnig þeim bandarísku flugfélögum sem hafa flogið hingað undanfarin ár.“

AVIÖR er í samstarfi við þekkingarfyrirtæki um þjálfun, fræðslu og endurmenntun fyrir starfsmenn AVIÖR. Í samræmi við reglur um flugöryggi eru gerðar reglubundnar úttektir á þjónustunni af óháðum aðilum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK