Nýtt fimm stjörnu hótel, The Retreat, við Bláa lónið var opnað á páskadag og fengu fyrstu gestir hótelsins páskaegg af því tilefni.
Már Másson, markaðs- og mannauðsstjóri Bláa lónsins, segir fjölda bókana standa undir væntingum.
Ein nótt á hótelinu kostar frá 144 þúsund krónum, en gestirnir njóta þjónustu einkaþjóna og hafa aðgang að sérbaðlóni, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta nýja hótel í Morgunblaðinu í dag.