Guðrún Erla formaður stjórnar Veitna

Guðrún Erla Jónsdóttir, nýr stjórnarformaður Veitna.
Guðrún Erla Jónsdóttir, nýr stjórnarformaður Veitna. Ljósmynd/OR

Guðrún Erla Jónsdóttir var á aðalfundi Veitna ohf., dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, skipuð nýr stjórnarformaður fyrirtækisins. Guðrún er stefnustjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Auk Guðrúnar Erlu skipa hina nýju stjórn Veitna Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Bjarni Freyr Bjarnason, sérfræðingur á fjármálasviði OR, Guðni Axelsson, forðafræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum, og Sólrún Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri OR, sem er varaformaður stjórnarinnar.

Guðrún Erla lauk B.Sc.-prófi í ferðamála- og viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2004 með viðkomu í San Diego State University. Hún stundaði framhaldsnám í Syddansk Universitet í Odense og lauk M.Sc.-prófi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands 2006. Guðrún Erla var skrifstofustjóri hjá Orkuveitu Húsavíkur til 2008 og síðan framkvæmdastjóri fyrirtækisins þar til hún gekk til liðs við OR árið 2015. Samhliða starfi sínu hjá OR leggur Guðrún Erla stund á doktorsnám og er rannsóknarsvið hennar stjórnhættir og stefnutengd hlutverk stjórna.

Guðrún Erla var fyrsta konan til að eiga sæti í stjórn Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Þar hefur hún átt sæti frá árinu 2012 og verið varaformaður samtakanna frá 2016.

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að meirihluti stjórnarmanna sé nú konur í fyrsta sinn hjá fyrirtækinu. Þá sé framkvæmdastjóri þess einnig kona, Inga Dóra Hrólfsdóttir verkfræðingur. Hún sé jafnframt eina konan sem stýrir stóru orku- eða veitufyrirtæki í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK