Aðalheiður ráðin yfir sölustýringu Icelandair

Aðalheiður Kristinsdóttir, forstöðumaður sölustýringar Icelandair.
Aðalheiður Kristinsdóttir, forstöðumaður sölustýringar Icelandair. Ljósmynd/Aðsend

Aðalheiður Kristinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður sölustýringar Icelandair. Deildin er hluti af sölu- og markaðssviði félagsins og annast sölustarf Icelandair um allan heim.

Aðalheiður hefur starfað hjá Icelandair síðan 2006 sem verkefnastjóri bæði í tekjustýringu og við rekstrargreiningar á sölu- og markaðssviði. Áður starfaði hún sem birgðastjóri Hagkaupa, og verkefnastjóri hjá Högum.

Aðalheiður hefur lokið BS-prófi í rekstrarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hún er gift Starkaði Erni Arnarsyni og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK