Frjálsi hugaði ekki að hagsmunatengslum

Frjálsi lífeyrissjóðurinn horfði ekki nægilega gagnrýnum augum á þau hagsmunatengsl sem voru til staðar við fjárfestingu í United Silicon og af þeim sökum var ekki tekið fullnægjandi tillit til þeirrar orðsporsáhættu sem lífeyrissjóðurinn stóð frammi fyrir vegna þessa.

Þetta er niðurstaða athugunar Fjármálaeftirlitsins á ferli fjárfestingar Frjálsa lífeyrissjóðsins í United Silicon síðastliðið haust en lífeyrissjóðurinn útvistar starfsemi sinni að öllu leyti til Arion banka. Fjárfesting sjóðsins í United Silicon nam samtals 1.178 milljónum króna. 

Fjárfestingaferlið hvorki eðlilegt né heilbrigt

Telur Fjármálaeftirlitið að skjalfesting á forsendum og umræðum í tengslum við ákvörðun stjórnar hafi verið ófullnægjandi í ljósi þess að lífeyrissjóðurinn og rekstraraðili hans hafi báðir verið hagsmunaaðilar að verkefninu.

Er það mat Fjármálaeftirlitsins að fjárfestingaferli lífeyrissjóðsins hafi ekki verið eðlilegt og heilbrigt eins og lög kveða á um. Fjármálaeftirlitið fer fram á að ritun fundargerða lífeyrissjóðsins verði framvegis með þeim hætti að hægt sé að sýna fram á að sjónarmið og hagsmunir lífeyrissjóðsins hafi verið í fyrirrúmi við ákvörðunartöku.

Grípi til ráðstafana

Jafnframt að lífeyrissjóðurinn grípi til ráðstafana til að lágmarka orðsporsáhættu vegna hagsmunatengsla sjóðsins og rekstraraðila og endurskoðaði verklag sitt, svo sem með stefnu um hvenær óskað er eftir utanaðkomandi greiningum á fýsileika og áhættu fjárfestinga og hvernig fjárfestingarferli lífeyrissjóðsins skuli háttað þegar rekstraraðili eða aðilar honum tengdir eru einnig haghafar að verkefnum.

Þá er farið fram á að Frjálsi geri Fjármálaeftirlitinu grein fyrir þeim aðgerðum sem sjóðurinn hefur eða hyggst grípa til í því skyni að bæta verklag við fjárfestingarákvarðanir í samræmi við sjónarmið eftirlitsins. 

Uppfært 13.13:

Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur gefið út tilkynningu vegna niðurstöðu FME. Í tilkynningunni segir að fjárfestingarferli sjóðsins hafi verið lagað enn frekar að kröfum um gagnsæi og ásýnd vegna orðsporsáhættu, sér í lagi þegar rekstaraðili sjóðsins eða aðilar honum tengdir eru einnig haghafar að fjárfestingarverkefnum.  Í því felst meðal annars að í ákveðnum tilvikum verði óskað eftir utanaðkomandi greiningum á fýsileika og áhættu fjárfestinga.

Stjórnin hefur einnig breytt starfsreglum sínum þannig að fundargerðir stjórnarfunda veiti gleggri heildarsýn yfir umræður á stjórnarfundum. Ástæða þykir til að leiða skýrt í ljós við ritun fundargerða að sjónarmið og hagsmunir lífeyrissjóðsins séu jafnan í fyrirrúmi við ákvarðanatöku.

Tekið er fram að engar athugasemdir hafi komið fram í athugun FME um að lög, reglur, reglugerðir eða samþykktir sjóðsins hafi verið brotnar af hálfu Frjálsa. 

„Stjórnin telur að í reynd hafi ekki skort á gagnrýna umræðu innan stjórnar í fjárfestingarferlinu. Hún gerir hins vegar ekki ágreining við FME um að hún hefði mátt taka meira tillit til þeirrar orðsporsáhættu sem fjárfestingunni var samfara og til þess að ritun fundargerða hefði mátt fanga betur umræður stjórnarfunda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK