Margrét ráðin forstöðumaður hjá Advania

Margrét Gunnlaugsdóttir.
Margrét Gunnlaugsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Margrét Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður vöru- og viðskiptaþróunar rekstrarlausna Advania.

Hún starfaði áður sem vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já, sviðsstjóri þjónustu- og ráðgjafasviðs hjá Wise og rekstrarstjóri tækniþjónustu hjá Íslandsbanka.

Margrét er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið PMD-stjórnendanámi í Háskólanum í Reykjavík. 

Í fréttatilkynningu frá Advania segir að viðskiptavinum Advania í rekstrar- og hýsingarþjónustu hafi fjölgað verulega á undanförnum árum og að hlutverk Margrétar felst í að byggja ofan á þá vegferð. Advania nýtur góðs af kröftum Margrétar sem hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr upplýsingatæknigeiranum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK