Þrír nýir starfsmenn hjá Alvotech

María Stefánsdóttir til vinstri og Bragi Jónsson og Laxmi Adhikary …
María Stefánsdóttir til vinstri og Bragi Jónsson og Laxmi Adhikary til hægri. Samsett mynd

Lyfjafyrirtækið Alvotech hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn, þau Braga Jónsson, Maríu Stefánsdóttur og Laxmi Adhikary. Frá áramótum hefur fyrirtækið auglýst 32 ný störf á Íslandi en þar starfa nú um 250 vísindamenn, að því er kemur fram í fréttatilkynningu vegna ráðninganna. 

Bragi Jónsson leiðir bókhaldsdeild Alvotech ásamt því að bera ábyrgð á uppgjöri og fjárhagseftirliti. Bragi er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og er með mastersgráðu í verkefnastjórnun (MPM). Bragi hefur yfir 25 ára reynslu af uppgjöri fyrirtækja og fjárhagseftirliti en síðastliðin 15 ár starfaði hann hjá Actavis sem fjármálastjóri framleiðslu- og sölufyrirtækis Actavis á Íslandi.

María Stefánsdóttir stýrir einni af lykilstoðum samfélagslegrar ábyrgðar Alvotech sem snýr að umhverfismálum og sér í lagi notkun á vistvænni orku við framleiðslu. María er menntaður iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og er með M.S. gráðu í umhverfisverkfræði frá University of Washington. Hún mun leiða öryggis-, heilsu- og umhverfismál hjá Alvotech. María hefur breiðan bakgrunn á sviði verkfræði en hún starfaði áður hjá verkfræðistofunni Mannviti og forverum þess í 11 ár áður en hún kom til starfa hjá Alvotech.

Laxmi Adhikary leiðir verkefnastjórnun þróunarverkefna fyrirtækisins. Laxmi hefur yfir 15 ára reynslu innan líftæknigeirans og hefur þar sinnt ýmsum hlutverkum og hefur því víðtæka reynslu innan virðiskeðju þróunarverkefna. Í störfum sínum hjá lyfjafyrirtækinu Biocon tók hún þátt í að leiða verkefni við að setja á markað samheitalíftæknilyf. Laxmi er með doktorsgráðu í lífrænni efnafræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK