Berglind kjörin varaformaður bankaráðs Landsbankans

Berglind Svavarsdóttir, varaformaður bankaráðs.
Berglind Svavarsdóttir, varaformaður bankaráðs. Ljósmynd/Aðsend

Berglind Svavarsdóttir hæstaréttarlögmaður hefur verið kjörin varaformaður bankaráðs Landsbankans.

Berglind Svavarsdóttir lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1989, öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 1995 og sem hæstaréttarlögmaður árið 2008. Berglind er meðeigandi hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur.

Hún hefur gegnt ýmsum stjórnarstörfum og sat m.a. í stjórn Lögmannafélags Íslands 2015-2017, þar af sem varaformaður 2016-2017. Berglind var fyrst kjörin í bankaráð Landsbankans í apríl 2016.

Bankaráð er kjörið á aðalfundi til eins árs í senn. Formaður bankaráðs er kjörinn á hluthafafundi en bankaráð kýs sér varaformann á fyrsta fundi eftir kjör þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK