Brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll voru um 173 þúsund talsins í mars síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um 5.200 fleiri en í mars á síðasta ári.
Þetta kemur fram í frétt á vef Ferðamálastofu þar sem finna má ýtarlega sundurliðun. Í fréttinni kemur fram að aukningin nemi 3,1% milli ára, nokkru minni en mælst hefur í mars síðustu árin. Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir í mars en þeim fækkar á milli ára.
Hlutfallsleg aukning milli ára er minni í mars en aðra mánuði vetrarins og sé litið til vetrarins í heild (nóvember til mars) má sjá verulega minni fjölgun en síðustu ár. Þannig var aukning yfir vetrarmánuðina nú 7% á milli ára, samanborið við 59% milli vetrarins 2015-16 og 2016-17.
Frá áramótum hafa 307.600 erlendir farþegar farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 8,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra.
Sá hópur sem hefur stækkað hvað mest samanstendur af „öðrum þjóðernum“ en þar á meðal eru Asíuþjóðir, s.s. Kínverjar, en fjöldi þeirra að vetri hefur ríflega fjórfaldast síðustu fimm ár.
Um 56.700 Íslendingar fóru utan í mars í ár eða 38,9% fleiri en í mars 2017. Samtals voru brottfarir Íslendinga í janúar, febrúar og mars um 136 þúsund talsins eða 20% fleiri en á sama tímabili árið 2017.