Laun hækka 1. maí

mbl.is/Styrmir Kári

Þann 1. maí næstkomandi hækka laun almennt um 3% samkvæmt kjarasamningum SA og aðildarsamtaka ASÍ. Lágmarkslaun hækka meira eða sem nemur 7% og verður lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf 300 þúsund krónur.

kaupgjaldskrá er komin út og er aðgengileg á vef SA en þar er að finna uppfærðar launatöflur. Í frétt á vef SA er minnt á að 1. júlí næstkomandi hækki mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóði á samningssviði SA og aðildarfélaga ASÍ úr 10,0% í 11,5%.

Í kjarasamningunum SA og ASÍ í janúar 2016 náðist samkomulag um að mótframlagið hækkaði um 3,5 prósentur samtals. 1. júlí 2016 hækkaði framlagið úr 8,0% í 8,5% og 1. júlí 2017 úr 8,5 í 10,0%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK