Verksmiðjan í Vogum tekin í notkun

Verksmiðja ÍSAGA.
Verksmiðja ÍSAGA. Ljósmynd/Aðsend

2,5 milljarða króna verksmiðja ÍSAGA í Vogum á Vatnsleysuströnd var formlega tekin í notkun í dag en stefnt er að því að flytja alla meginstarfsemi ÍSAGA í verksmiðjuna. 

Verksmiðjan framleiðir súrefni og köfnunarefni úr andrúmsloftinu og í fréttatilkynningu frá ÍSAGA segir að hún muni styðja við ört vaxandi íslenskan iðnað og framleiðslu, ásamt því að sjá heilbrigðisþjónustunni áfram fyrir hágæðasúrefni á öruggan hátt.

Bygging nýju súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju ÍSAGA ehf. og þýska móðurfélagsins Linde við Heiðarholt í Vogum á Vatnsleysuströnd er fyrsta skrefið í að flytja þangað alla meginstarfsemi fyrirtækisins sem stofnað var árið 1919 í samstarfi við sænska fyrirtækið AGA. Með kaupum á AGA 1999 eignaðist Linde ÍSAGA en samsteypan er stærsta gasfyrirtæki heims í dag með starfsemi í yfir 100 löndum.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók nýju verksmiðjuna formlega í notkun við hátíðlega athöfn í Vogum í dag, að viðstöddum bæjaryfirvöldum í Vogum, þingmönnum Suðurkjördæmis og fleiri góðum gestum.

Nýja verksmiðjan leysir af hólmi 40 ára gamla verksmiðju við Breiðhöfða í Reykjavík. Afkastageta hennar er um 1.200 m³ á klukkustund, eða 30% meiri en gömlu verksmiðjunnar, en orkunotkunin er samt umtalsvert minni.

Verksmiðjan alsjálfvirk

Fjárfestingarkostnaður vegna verksmiðjunnar er um 2,5 milljarðar króna, fyrst og fremst í tæknibúnaði. Hægt er að tvöfalda afkastagetuna þegar þurfa þykir og standa vonir til að það verði gert innan nokkurra ára samfara auknum uppgangi í fiskeldi, kísilmálmvinnslu, kæli- og frystiflutningum og endurvinnslu áls, ásamt áframhaldandi vexti í heilbrigðisþjónustu og hefðbundnum iðnaði.

Verksmiðjan í Vogum er alsjálfvirk. Henni verður fjarstýrt af starfsfólki ÍSAGA sem fylgist með rekstrinum allan sólarhringinn á sama hátt og gert er í dag í verksmiðjunum við Breiðhöfða og að Hæðarenda í Grímsnesi, þar sem framleitt er koldíoxíð úr jarðhitavatni. Enginn mengandi úrgangur eða aukaefni fylgja framleiðslunni og eini útblásturinn er lyktarlaus vatnsgufa, að því er kemur fram í fréttatilkynningunni. 

Auk þess að framleiða súrefni, köfnunarefni og koldíoxíð flytur ÍSAGA inn lofttegundir eins og glaðloft, argon, helíum, acetylen og própan. Um 28 manns starfa að jafnaði hjá fyrirtækinu sem er með höfuðstöðvar að Breiðhöfða, þar sem er m.a. áfyllingarstöð, skrifstofa og verslun, auk þess sem félagið er með sjö afgreiðslustaði víðs vegar um landið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK