Vöruviðskipti óhagstæð um 13,4 milljarða

Verðmæti vöruútflutnings í apríl nam 48 milljörðum króna og verðmæti vöruinnflutnings 61,4 milljörðum króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob-verðmæti, voru þannig óhagstæð um 13,4 milljarða króna.

Í apríl 2018 var verðmæti vöruútflutnings 6,7 milljörðum króna hærra en í apríl 2017 eða 16% á gengi hvors árs. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að hækkun sé í öllum flokkum milli ára en mestu muni um sjávarafurðir og iðnaðarvörur.

Verðmæti vöruinnflutnings í apríl var 9,7 milljörðum króna hærra en í apríl 2017 eða 19% á gengi hvors árs.

„Þessi munur milli tímabila skýrist bæði af innflutningi á skipum og flugvélum og innflutningi á eldsneyti. Það skal þó haft í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða svo þessi staða gæti breyst eftir endurskoðun í lok mánaðarins,“ segir í fréttinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK