Íslensk-evrópska viðskiptaráðið stofnað

Frá stofnfundinum í dag. Páll Rúnar M. Kristjánsson er fyrir …
Frá stofnfundinum í dag. Páll Rúnar M. Kristjánsson er fyrir miðri mynd. Ljósmynd/Félag atvinnurekenda

Stofnfundur Íslensk-evrópska viðskiptaráðsins var haldinn í dag, í lok málþings um viðskipti Íslands og Evrópusambandsins, sem Félag atvinnurekenda og sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi stóðu að í sameiningu.

Stofnfélagar í ráðinu eru rúmlega 20 fyrirtæki, í innflutningi, útflutningi, ferðaþjónustu, flutningum, ráðgjöf og fleiri greinum tengdum viðskiptum Íslands og ESB, að því er segir í tilkynningu.

Í fyrstu stjórn ÍEV voru kjörin þau Páll Rúnar M. Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, formaður, Margrét Guðmundsdóttir, einn af eigendum Icepharma, Arnar Atlason, framkvæmdastjóri Tor ehf., Ólafur Ó. Johnson, framkvæmdastjóri Ó. Johnson og Kaaber og Damien Degeorges, framkvæmdastjóri Degeorges Consulting ehf.

Stofnfélagar eru Degeorges Consulting ehf.,ENOX Production Services GmbH, Festi hf., Frostfiskur ehf., G. Ingason hf., Garri ehf, Golden Seafood Company ehf., Hafgæði sf., Hafnarnes VER hf., Hagar hf., Icelandair Group hf.,  Icemar ehf., Icepharma hf., Innnes ehf., Islenska umboðssalan ehf., Ísfiskur hf., Málflutningsstofa Reykjavíkur ehf., Ó. Johnson og Kaaber ehf., Sælkeradreifing ehf., Smyril Line Ísland ehf., Toppfiskur ehf., Tor ehf. og WOW Air ehf. 

Fram kemur í tilkynningunni að enn sé tækifæri til að gerast stofnfélagi ráðsins. Áhugasöm fyrirtæki eru hvött til að hafa samband við skrifstofu FA.

Í samþykktum ÍEV segir að tilgangur ráðsins sé að „efla verslunar– og viðskiptasambönd milli Íslands og Evrópusambandsins. Sérstakt viðfangsefni ráðsins er að beita sér fyrir því að rekstur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið gangi sem best og að allir aðilar samningsins standi við skuldbindingar sínar samkvæmt honum. Jafnframt er það hlutverk ráðsins að stuðla að því að viðskipti samkvæmt tvíhliða samningum Íslands og ESB gangi sem greiðast fyrir sig.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK