12,8 milljarða halli í maí

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir maí 2018 nam fob verðmæti vöruútflutnings 53,3 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings tæpum 66,2 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,8 milljarða króna.

Í maí 2018 var verðmæti vöruútflutnings 4,1 milljörðum króna hærra en í maí 2017 eða 8,2% á gengi hvors árs. Hækkun má að mestu leyti rekja til aukningar í útflutningi sjávarafurða.

Verðmæti vöruinnflutnings í maí var 6,7 milljörðum króna lægri en í maí 2018 eða 9,3% á gengi hvors árs. Þessi munur milli tímabila skýrist aðallega af innflutningi á skipum og flugvélum.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK