Björn Markús til liðs við Origo

Björn Markús Þórsson.
Björn Markús Þórsson. Ljósmynd/Origo

Björn Markús Þórsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í miðlægum lausnum hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Björn Markús býr yfir viðamikilli reynslu en hann hefur komið að fjölmörgum innleiðingum tölvukerfa og rekstri upplýsingatæknikerfa hjá ólíkum fyrirtækjum á liðnum árum. Sú reynsla mun nýtast Origo vel í þeim verkefnum sem eru fram undan,“ segir enn fremur.

Björn starfaði áður sem deildarstjóri tölvudeildar Mannvits, annaðist hönnun og innleiðingu á tölvukerfi Mannvits í Ungverjalandi og Bretlandi og stækkun á tölvukerfi Norðuráls. Enn fremur starfaði hann sem sérfræðingur í skýja-, afritunar- og rekstrarlausnum hjá Advania. Björn er með Microsoft Certified IT Professional-vottun frá Promennt auk vottunar í Veeam.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK