Gunnar Dofri til Viðskiptaráðs

Gunnar Dofri Ólafsson.
Gunnar Dofri Ólafsson. Ljósmynd/Aðsend

Gunnar Dofri Ólafsson hefur verið ráðinn lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Gunnar Dofri er með meistarapróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands.

Í fréttatilkynningu frá Viðskiptaráði segir að Gunnar Dofri hafi víðtæka reynslu af bæði lögfræðistörfum og störfum í fjölmiðlum. Hann hefur störf hjá Viðskiptaráði Íslands í júlí.

Lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands sinnir lögfræðilegri ráðgjöf við framkvæmdastjóra og stjórn, umsagnagerð, skýrsluskrifum og fleiri verkefnum tengdum málefnastarfi ráðsins. Lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands heldur jafnframt utan um starfsemi gerðardóms Viðskiptaráðs. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK