Erlendur Magnússon var í morgun kosinn stjórnarformaður Heimavalla en hluthafafundur félagsins fór fram á Hilton-hóteli Nordica í morgun. Magnús Magnússon fyrrverandi stjórnarformaður gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu.
Á fundinum voru þar að auki Anna Þórðardóttir, Arthur Irving, Hildur Árnadóttir og Halldór Kristjánsson kosin í stjórn félagsins en Halldór er þar að auki varaformaður stjórnar.
Heimavellir er stærsta leigufélag landsins með um tvö þúsund íbúðir í rekstri um allt land. Á fundinum kom fram að tekjur Heimavalla á frysta ársfjórðungi hafi verið 906 milljónir, sem nemur 31 prósenta hækkun milli ára. Hagnaður á tímabilinu nam 99 milljónum króna.