Farþegum WOW air fjölgaði um 60% í maí

Ljósmynd/Wow air

WOW air flutti 328 þúsund farþega til og frá landinu í maí eða um 60% fleiri farþega en í maí árið 2017. Þá var sætanýting WOW air 90% í maí í ár en var 86% í fyrra. Sætanýtingin jókst þrátt fyrir 59% aukningu á framboðnum sætakílómetrum miðað við sama tímabil í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt um 1,2 milljón farþega. Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu þá er 13% vöxtur ferðamanna til Íslands í maí mánuði drifinn áfram einna helst af ferðamönnum frá Bandaríkjunum. Komufarþegum WOW air fjölgaði um 25% á milli ára samanborið við 13% vöxt heildarmarkaðarins til Íslands, segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK