Allir farþegar sem fara í gegnum Keflavíkurflugvöll geta nú fengið upplýsingar um bókuð flug sendar beint til sín á Twitter og Facebook Messenger. Þetta er meðal þess sem er að finna á nýjum vef Isavia, að því er segir í fréttatilkynningu.
„Með nýrri þjónustu frá írska fyrirtækinu BizTweet – www.biztweet.aero/ – er gervigreind nýtt til að koma upplýsingum til notenda með þeim hætti sem þeir kjósa. Hægt [er] að fá upplýsingar um flug og þjónustu á Keflavíkurflugvelli sendar í gegnum Twitter eða Messenger forrit Facebook. Helstu flugvellir heims eru farnir að nýta sér þessa þjónustu, þar á meðal alþjóðaflugvellirnir í Melbourne í Ástralíu og Dúbaí sem og London City-flugvöllur,“ segir enn fremur í fréttatilkynningu.