Neytendur verði af 104 tonnum af ostum

Félag atvinnurekenda segir hagsmunaaðila í landbúnaði hafa beitt atvinnuveganefnd þrýstingi.
Félag atvinnurekenda segir hagsmunaaðila í landbúnaði hafa beitt atvinnuveganefnd þrýstingi.

Neytendur verða á þessu ári af 104 tonnum af tollfrjálsum ostum frá Evrópusambandinu vegna breytinga Alþingis á frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um innflutning svokallaðra sérosta. Þetta kemur fram í frétt á vef Félags atvinnurekenda, en félagið gagnrýnir harðlega það sem það kallar „þjónkun ríkisstjórnarmeirihlutans við hagsmuni innlendra framleiðenda búvara.“

Þingið samþykkti í nótt breytingartillögu meirihluta ríkisstjórnarflokkanna í atvinnuveganefnd við frumvarpið, sem fellir niður meginhluta þess og hefur af neytendum þær hagsbætur, sem í því áttu að felast og samkomulag var um við samþykkt búvörusamninganna árið 2016, að því er segir í fréttinni.

„Í ljósi þess að niðurstaðan varð þessi, gilda óbreytt ákvæði tollasamnings Íslands og ESB um að tollfrjáls innflutningskvóti fyrir svokallaða sérosta, þ.e. osta sem falla undir vernd afurðaheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinn­ar sérstöðu, taki gildi í áföngum á fjórum árum,“ segir þar jafnframt. Svo er forsaga málsins rakin. Þáverandi meirihluti atvinnuveganefndar hafi lagt til, í því skyni að liðka fyrir samþykki búvörusamninga á sínum tíma, að taka alla aukningu tollkvóta fyrir sérosta, 230 tonn, inn strax við gildistöku samningsins. Jón Gunnarsson, þáverandi formaður nefndarinnar, hafi kallað þessa ráðstöfun verulega tilslökun á móti hækkun á almennum tollum á osta sem kveðið var á um í samningum, en sú hækkun tók gildi í ársbyrjun 2017.

„Atvinnuvegaráðuneytið framkvæmdi ekki þennan vilja Alþingis og bar fyrir sig að skort hefði skýrt heimildarákvæði í texta laganna þegar búvörusamningarnir voru samþykktir. Eftir að Félag atvinnurekenda vakti athygli á málinu og gagnrýndi vinnubrögð ráðuneytisins ákvað Kristján Þór Júlíusson að flytja frumvarp til að vilji Alþingis frá árinu 2016 mætti ná fram að ganga og öll aukningin á tollkvóta fyrir sérosta tæki gildi á þessu ári.“

Hagsmunaaðilar í landbúnaði beittu þrýstingi

Í fréttinni er bent á að meirihluti núverandi atvinnuveganefndar hafi í fyrstu lagt til þær breytingar á frumvarpinu að aukningin tæki gildi á þessu ári og því næsta. Eftir aðra umræðu hafi nefndin hins vegar skipt um skoðun, „eftir að hagsmunaaðilar í landbúnaði beittu hana verulegum þrýstingi, og lagði til í nefndaráliti sem lagt var fram í gær að 1. grein frumvarpsins, um að flýta aukningu tollkvótans, félli alfarið á brott. Þannig var frumvarpið samþykkt í nótt. Þetta þýðir að á þessu ári missa neytendur af 104 tonnum af tollfrjálsum ostum og á næstu þremur árum af tugum tonna árlega.“

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir þessa afgreiðslu Alþingis harðlega. „Við samþykkt búvörusamninganna var lagt til að hraða innleiðingu sérostakvótans til að vega upp á móti miklum tollahækkunum á mjólkurvörum, þar á meðal á ostum, sem ríkið samdi um við bændur. Nú hafa þær tollahækkanir verið í gildi í eitt og hálft ár, en gildistöku tollasamningsins við ESB seinkaði hins vegar til 1. maí síðastliðins. Þegar af þeim ástæðum hallar á neytendur og innflytjendur osta. Í stað þess að lagfæra það klúður sem varð í lagasetningunni á sínum tíma, ákveða fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna nú að rjúfa sáttina og ganga þannig freklega gegn hagsmunum og réttmætum væntingum jafnt innflutningsfyrirtækja og neytenda,“ segir Ólafur.

Ólafur bendir á að tollkvóta fyrir sérosta er ekki úthlutað með uppboði eins og öðrum tollkvótum, heldur með hlutkesti. „Það þýðir að hægt er að selja þessa osta á mun lægra verði en ella af því að á þá leggst ekkert útboðsgjald. Meira úrval og lægra verð í ostaborðinu er auðvitað eitur í beinum hagsmunaaðila í landbúnaði. Því miður láta fulltrúar stjórnarflokkanna hagsmuni þeirra ganga framar hagsmunum innflytjenda og neytenda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK