Eva í hóp eigenda Lögmanna Lækjargötu

Eva Halldórsdóttir lögmaður.
Eva Halldórsdóttir lögmaður. Ljósmynd/Aðsend

Eva Halldórsdóttir lögmaður hefur bæst í hóp eigenda Lögmanna Lækjargötu ehf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Eva er með LL.M-próf með áherslu á félagarétt og stjórnarhætti frá lagadeild Stanford-háskóla í Bandaríkjunum. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2004, hlaut málflutningsréttindi árið 2005 og lauk prófi í verðbréfamiðlun árið 2007. Eva hefur starfað hjá Lögmönnum Lækjargötu frá árinu 2014 sem lögmaður og sem verkefnastjóri stofunnar.

Samhliða lögmannsstörfum hefur Eva setið í stjórnum ýmissa félaga, hún á sæti í áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, situr í stjórn knattspyrnudeildar Vals og er ritstjóri Lögmannablaðsins.

Fyrir í hópi eigenda Lögmanna Lækjargötu eru lögmennirnir Andri Vilhjálmur Sigurðsson, Birgir Tjörvi Pétursson, Guðmundur H. Pétursson, Reimar Pétursson og Sigurður Kári Kristjánsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK