Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2017 námu skuldir félagsins 2,9 milljörðum króna. Pálmi, sem gjarnan hefur verið kenndur við Fons, átti félagið í gegnum félagið Academy sárl. sem er skráð í Lúxemborg.
Jóhannes Kristinsson og Pálmi Haraldsson keyptu ráðandi hlut í Iceland Express árið 2004 af stofnendum flugfélagsins. Þeir voru einnig viðskiptafélagar gegnum Feng sem tók í nóvember 2008 yfir 92% hlut í Iceland Express með 300 milljóna eiginfjárinnspýtingu.
Iceland Express var tekið til gjaldþrotaskipta í mars 2013, en í október árið áður hafði WOW air tekið allan flugrekstur Iceland Express yfir. Kröfur á hendur flugfélaginu námu 1,3 milljörðum, um 300 milljónir fengust upp í kröfurnar.