Skeljungur í staðinn fyrir Regin

Félagið Skeljungur hf. kemur nýtt inn í vísitöluna.
Félagið Skeljungur hf. kemur nýtt inn í vísitöluna. mbl.is/Júlíus

Félagið Skeljungur hf. kemur nýtt inn í OMX Iceland 8-vísitölu kauphallarinnar í staðinn fyrir Regin fasteignafélag hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá kauphöllinni þar sem niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 8-vísitölunni, sem gerð er tvisvar á ári, eru kynntar.

Samsetning OMXI8-vísitölunnar frá og með 2. júlí 2018 verður því eftirfarandi:

Eik fasteignafélag hf. (EIK)

Hagar hf. (HAGA)

Icelandair Group hf. (ICEAIR)                

Marel hf. (MARL)

N1 hf. (N1)

Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)

Síminn hf. (SIMINN)

Skeljungur hf. (SKEL)

„OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum er hluti af vísitölunni,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK