Rannveig Rist segir sig úr stjórn HB Granda

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi.
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Rannveig Rist hefur sagt sig úr stjórn HB Granda hf. Stjórn fyrirtæksins barst tilkynning í kvöld frá Rannveigu, sem hefur gegnt varaformannsembætti stjórnar, um að hún segði sig þegar í stað úr stjórn félagsins. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá HB Granda til Kaup­hall­ar­inn­ar.

Í tilkynningu sem Rannveig sendi frá sér í kvöld segir hún ástæðuna fyrir úrsögn sinni vera þá að hún sé ósátt við uppsögn forstjóra félagsins nýverið og hvernig að henni var staðið.

Töluverðar breytingar hafa verið gerðar hjá fyrirtækinu upp á síðkastið. Í apríl keypti Guðmundur Kristjánsson 34,1% eignarhlut í HB Granda af Kristjáni Loftssyni og Halldóri Teitssyni.

Í síðustu viku ákvað svo meiri­hluti stjórn­ar HB Granda hf. að ganga til samn­inga við Vil­hjálm Vil­hjálms­son for­stjóra um starfs­lok hans hjá fé­lag­inu en hann hef­ur setið í for­stjóra­stóln­um frá ár­inu 2012. Á sama fundi ákvað stjórn að ráða Guðmund Kristjáns­son, nú­ver­andi stjórn­ar­formann fé­lags­ins, sem for­stjóra.

Rann­veig Rist kom fyrst inn í stjórn HB Granda að und­ir­lagi Arin banka sem þá var hluthafi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK