Upplýsingagjöf lánafyrirtækja ófullnægjandi

Ljósmynd/Thinkstock

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir gagnvart þremur fyrirtækjum, Aur, Pei og Greitt sem veita neytendalán, vegna skorts á upplýsingum við lánveitingu.

Frá þessu er greint í frétt á vef Neytendastofu, sem tekið hefur ákvörðun um að fyrirtækin skuli bæta úr upplýsingagjöf sinni innan fjögurra vikna.

Í lögum um neytendalán er lögð rík upplýsingaskylda á lánveitendur í auglýsingum, fyrir samningsgerð og við samningsgerð. Gert er ráð fyrir að upplýsingar sem veittar séu fyrir samningsgerð komi fram á sérstöku formi sem auðvelda neytendum að gera samanburð á lánum.

„Neytendastofa óskaði eftir upplýsingum frá lánveitendunum Aur, Pei og Greitt ásamt afriti af þeim gögnum sem neytendum eru veitt þegar þeir taka lán. Hjá öllum lánveitendum vantaði tilteknar upplýsingar annars vegar í svokallað staðlað eyðublað og hins vegar í lánssamning,“ að því er segir í fréttinni.

Ákvað stofnunin að fyrirtækin skuli bæta úr upplýsingagjöf sinni innan fjögurra vikna og hafa Aur og Pei þegar tilkynnt Neytendastofu að hafist sé handa við að gera viðunandi breytingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK