Vöruviðskipti á fyrri helmingi ársins óhagstæð um 83,4 milljarða

Á tímabilinu janúar til júní 2018 voru fluttar út vörur …
Á tímabilinu janúar til júní 2018 voru fluttar út vörur fyrir 287 milljarða króna en inn fyrir 370,4 milljarða. mbl.is/Árni Sæberg

Í júní 2018 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 50,7 milljarða króna og inn fyrir 71,1 milljarð króna fob (75,9 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob-verðmæti, voru því óhagstæð um 20,5 milljarða króna.

Í júní 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 14,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í júní 2018 var því 5,6 milljörðum króna meiri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 18,4 milljörðum króna samanborið við 12,5 milljarða króna halla í júní 2017, að því er segir á vef Hagstofu Íslands.

Á tímabilinu janúar til júní 2018 voru fluttar út vörur fyrir 287 milljarða króna en inn fyrir 370,4 milljarða (395,4 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 83,4 milljörðum króna reiknað á fob-verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 86,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn janúar til júní er því 2,8 milljörðum króna minni en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 66,7 milljörðum króna, samanborið við 73,6 milljarða króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu sex mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 42,9 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 17,6% á gengi hvors árs.¹ Iðnaðarvörur voru 53,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,3% hærra en á sama tíma árið áður. Hækkunina á milli ára má rekja til hærra meðalverðs á áli. Sjávarafurðir voru 40,2% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 24,1% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í nær öllum undirliðum sjávarafurða en aukninguna á milli ára má rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.

Innflutningur
Á fyrri helmingi ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 40,1 milljarði króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 12,1% á gengi hvors árs.¹ Mestu munaði um innflutning á eldsneyti og fjárfestingu í flugvélum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK