157.000 ný störf í Bandaríkjunum í júlí

AFP

Um 157.000 ný störf urðu til í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, en það er 33.000 störfum færra en hagfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Þá er talsverður munur á milli mánaða því störfum fjölgaði um 248.000 í júní. 

Hagfræðingar höfðu spáð því að talan fyrir júlímánuð yrði nær 190.000, að því er segir á vef BBC.

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum lækkaði úr 4,0% í 3,9% að sögn bandaríska atvinnuvegaráðuneytisins. Það er svipað og var í maí, en þá hafði atvinnuleysi í Bandaríkjunum ekki mælst lægra í 18 ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK