Ófullnægjandi upplýsingar um fasteignalán til neytanda

Í niðurstöðu Neytendastofu kom fram að lánssamningarnir hafi verið samdir …
Í niðurstöðu Neytendastofu kom fram að lánssamningarnir hafi verið samdir af Frjálsa fjárfestingarbankanum sem ekki sé starfræktur í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun vegna ófullnægjandi upplýsingagjafar Frjálsa fjárfestingarbankans hf. um fasteignalán til neytanda í erlendri mynt. Í niðurstöðu Neytendastofu kom fram að lánssamningarnir hafi verið samdir af Frjálsa fjárfestingarbankanum sem ekki sé starfræktur í dag. Þá hafi samningar á þessu formi verið dæmdir ólögmætir og því ljóst að nýr kröfuhafi, Arion banki, veiti ekki eða taki við sambærilegum samningum.

Af þessum ástæðum og með hliðsjón af niðurstöðu málsins taldi Neytendastofa ekki tilefni til að grípa til frekari aðgerða gagnvart Arion banka í þessu máli, að því er fram kemur á vef Neytendastofu.

Mál þetta hófst með kvörtun frá neytanda vegna tveggja lánssamninga við félagið sem höfðu verið framseldir til Arion banka. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að Frjálsi fjárfestingarbankinn hafi brotið gegn lögum með því að tilgreina ekki heildarlántökukostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar á fasteignaláni í erlendri mynt. Enn fremur hafi fyrirtækið brotið gegn lögum með því að tilgreina ekki í skilmálum um endurskoðun vaxtaálags við hvaða aðstæður vaxtaálag geti breyst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK