Setja 442 milljarða í kannabis

AFP

Móðurfélag Corona bjórsins, Constellation Brands, er að fjárfesta fyrir fjóra milljarða Bandaríkjadala, 442 milljarða króna, í helsta framleiðanda kannabis í Kanada, Canopy Growth. Er þetta ein stærsta fjárfesting sögunnar í löglegu kannabisframleiðslufyrirtæki.

Í fyrra fjárfesti Constellation fyrir 200 milljónir Bandaríkjadala í Canopy í samningi sem snýst um framleiðslu á drykk sem inniheldur ekki áfengi heldur kannabis.

Í frétt BBC kemur fram að hlutabréf Canopy hafi hækkað um 30% í kauphöllinni í Toronto þegar upplýst var um samkomulagið í gærkvöldi en hlutabréf Constellation lækkuðu um 6% í kauphöllinni í New York.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK