Ólíklegt að bankarnir komi að WOW

Vonir standa til þess að skuldabréfaútboði WOW air ljúki á …
Vonir standa til þess að skuldabréfaútboði WOW air ljúki á morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Afar ólíklegt er talið að stóru bankarnir þrír muni taka þátt í fjármögnun Wow air. Þetta hefur Fréttablaðið í dag eftir heimildarmönnum sínum. Blaðið greindi frá því í gær að forsvarsmenn flugfélagsins hefðu leitað til bankanna. Yfir stendur skuldabréfaútboð félagsins.

Þá segir í frétt Fréttablaðsins að stjórnendur og ráðgjafar Wow air vinni að því að fá erlenda fjárfesta til þess að taka þátt í útboðinu. Vonast þeir til þess að skuldabréfaútboðinu verði lokið á morgun, föstudag.

Í Viðskiptablaðinu í dag er haft eftir heimildarmönnum blaðsins að útilokað sé fyrir bankana að taka þátt í skuldabréfaútboðinu og að mjög erfitt verði fyrir þá að lána WOW, bæði vegna lágs eiginfjárhlutfalls og skorts á veðum. Bankarnir séu nú þegar farnir að herða ólina í útlánum og krefja til að mynda verktaka um allt að 40% eiginfjárhlutfall. Í frétt blaðsins er bent á að eiginfjárhlutfall WOW air sé 4,5%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK