Frumvarp mun vonandi skapa samstöðu

Katrín Jakobsdóttir sagði í ræðu sinni að hún hefði rætt …
Katrín Jakobsdóttir sagði í ræðu sinni að hún hefði rætt fiskveiðar frá því að hún var sex ára gömul. mbl.is/Kristinn Magnússon

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur að frumvarp um veiðigjöld sem Kristján Júlíusson sjávarútvegsráðherra kynnti í gær muni skapa samstöðu um þá mikilvægu atvinnugrein sem sjávarútvegur er. Þetta kom fram í máli Katrínar á Sjáv­ar­út­vegs­deg­in­um, ráðstefnu á veg­um Deloitte, SA og SFS.

Meg­in­mark­mið frum­varps­ um veiðigjöld er að færa álagn­ingu veiðigjalda nær í tíma, þannig að gjald­tak­an sé meira í takt við af­komu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, en einnig að stjórn­sýsla með álagn­ingu veiðigjalds verði ein­fald­ari, skil­virk­ari, gegn­særri og áreiðan­legri.

„Við erum kominn á þann stað að það ríkir skilningur um að auðlindin í hafinu er sameign þjóðarinnar,“ sagði Katrín. Hún bætti við að það væri eðlilegt að þeir sem notuðu auðlindir greiddu fyrir aðgang að þeim.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Mínar vonir standa til þess að stjórnmálaflokkar nái sem breiðastri samstöðu um ákveðnar breytingar á stjórnarskrá þannig að við fáum nýtt auðlindaákvæði. Við eigum náttúruna og auðlindirnar saman,“ sagði forsætisráðherra. 

Katrín sagði að sjávarútvegurinn væri hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar og ljóst sé að tækifærin framundan eru mikil. „Fiskurinn skiptir miklu máli fyrir sjálfsmynd þjóðar og efnahag,“ sagði Katrín og bætti við að íslenskur sjávarútvegur skipaði sér í fremstu röð á alþjóðavísu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK