Kyrrsettu að minnsta kosti eina vél

Flugvél frá Primera Air.
Flugvél frá Primera Air. mbl.is/ÞÖK

Að minnsta kosti ein flugvél frá flugfélaginu Primera Air hefur verið kyrrsett á Stansted-flugvellinum í Lundúnum vegna ógreiddra lendingargjalda. Flugfélagið er í eigu Andra Más Ingólfssonar. Þetta kemur fram í frétt á Aviation24.be.

Í tilkynningu frá forsvarsmönnum Stansted-flugvallar er tilkynnt um kyrrsetninguna.

Fyrr í dag birtist frétt á vef mbl.is um gjaldþrot flugfélagsins en frá því var greint í tölvupósti til starfsfólks fyrr í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK