Kaupa hlut í hjúkrunarheimilum

Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi.
Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi.

Kvika, ásamt fleiri fjárfestum, keypti nýverið meirihlutann í bresku heilbrigðisfyrirtæki sem rekur tvö hjúkrunarheimili á Englandi. Alls er um rúmlega þriggja milljarða króna viðskipti að ræða.

„Kvika hefur nýlokið við fjárfestingaverkefni í Bretlandi þar sem það leiddi hóp innlendra og erlendra fjárfesta í kaupum á meirihluta í breska heilbrigðisþjónstufyrirtækinu Cornerstone Healthcare. Fyrirtækið starfrækir tvö hjúkrunarheimili á Suður-Englandi og sérhæfir sig í þjónustu við aðila sem þjást af heilahrörnunarsjúkdómum.

Kaupin eru gerð í nánu samstarfi við samstarfsaðila Kviku í Bretlandi og námu þau rúmlega 20 milljónum sterlingspunda, sem er jafnvirði rúmlega þriggja milljarða króna. Reynslumikið teymi stjórnenda hefur verið ráðið til að stýra daglegum rekstri félagsins.

Cornerstone Healthcare var stofnað árið 1990 af Sargent-fjölskyldunni sem hefur rekið heimilin tvö frá upphafi. Hjúkrunarheimilin South Africa Lodge, sem er staðsett nálægt Portsmouth, og Kitnocks House í Southampton, hafa rúmlega 150 sjúkrarúm til ráðstöfunar.  Fjölskyldan hefur nú selt heimilin til fjárfestahópsins sem áformar að stækka félagið með kaupum á frekari hjúkrunarheimilum á komandi árum,“ segir í fréttatilkynningu.

Þar er haft eftir Gunnari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Kviku í Bretlandi, að fjárfestingin sé í samræmi við stefnu Kviku um að finna og bjóða viðskiptavinum Kviku upp á áhugaverða fjárfestingakosti í Bretlandi. 

„Cornerstone er vel rekið félag og við sjáum það sem góða undirstöðu fyrir þá viðskiptaáætlun sem fjárfestarnir hafa útbúið í samvinnu við sterkt teymi stjórnenda sem nú hefur tekið við rekstri félagsins. Í Bretlandi er mikill skortur á framboði á sérhæfðri þjónustu fyrir fólk sem þjáist af heilahrörnunarsjúkdómum miðað við þá eftirspurn sem til staðar er.  Þannig er mikið tækifæri fyrir okkar hóp fjárfesta að auka þjónustuna sem félagið veitir með frekari fjárfestingu í nýjum hjúkrunarrýmum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK