Mætum færni framtíðarinnar

mbl.is/Ernir

Samtök iðnaðarins standa fyrir opnum fundi á Grand hótel Reykjavík þar sem kynnt verður ný menntastefna samtakanna. Mætum færni framtíðarinnar er yfirskrift fundarins.

Fundurinn stendur frá kl. 12.00 til 13.30 og er hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér fyrir neðan.

Á fundinum verður farið yfir helstu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir til að skapa menntakerfi fyrir nýjar kynslóðir sem styður við velmegun og samkeppnishæfni þjóðarbúsins. Kynntar verða tillögur að umbótum sem miða að því að menntun mæti þörfum atvinnulífs framtíðarinnar þar sem krafist verður annarrar færni en nú þekkist. Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI.  

Dagskrá

  • Atvinnulífið og menntun - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Ný menntastefna SI - Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála hjá SI, og Vilhjálmur Hilmarsson, sérfræðingur í greiningum hjá SI
  • Færni framtíðarinnar - Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, og Guðmundur Hafsteinsson, yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant
  • Pallborðsumræður - Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK