Kornið lokar útsölustöðum

Kornið bakarí hefur lengið verið á Lækjargötu.
Kornið bakarí hefur lengið verið á Lækjargötu. Eggert Jóhannesson

Kornið bakarí hyggst loka að minnsta kosti þremur útsölustöðum sínum á næstunni í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins. Þar mun ætlunin að loka bakaríinu við Strikið í Garðabæ og í Lóuhólum í Breiðholti. Eins hyggst fyrirtækið loka dyrum sínum í Lækjargötu. Þá munu stjórnendur fyrirtækisins einnig kanna möguleikann á því að loka starfseminni sem rekin er í Borgartúni 29 í Reykjavík.

ViðskiptaMogginn leitaði viðbragða Helgu Kristínar Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, en hún tók við stöðunni í febrúar á síðasta ári í kjölfar eigendaskipta.

„Við tókum við fyrirtækinu og þá lá ljóst fyrir að fara þyrfti í breytingar á rekstrinum sem ekki hafði gengið nægilega vel,“ segir Helga Kristín.

Sjá fréttina í heild sinni í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK