Embættisskylda að senda málið áfram

Már segist geta stutt mál sitt með þeim upplýsingum sem …
Már segist geta stutt mál sitt með þeim upplýsingum sem fram koma í yfirlýsingunni. mbl.is/Hari

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segist hafa rætt við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, í síma sumarið 2012 og þá hafi talið borist að því að svokallað Samherjamál yrði sett í sáttaferli. Það hefði þá falið í sér einhverjar breytingar á fyrirkomulagi og verklagi hjá Samherja sem sköpuðu traust á því að gjaldeyrisskil fyrirtækisins væru í lagi.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem seðlabankastjóri sendi frá sér í dag, en þar skýrir hann betur ummæli sem hann lét falla í viðtölum við fjölmiðla 25. nóvember. Þorsteinn Már hefur hins vegar látið hafa eftir sér að hann efist um að Már hafi raunverulega viljað fara með málið í sáttaferli.

Hæstirétt­ur kvað upp dóm í máli Seðlabankans gegn Sam­herja 8. nóvem­ber síðastliðinn. Þar var staðfest niðurstaða Héraðsdóms Reykja­vík­ur um að fella úr gildi ákvörðun bankans frá 1. sept­em­ber 2016 um að Sam­herji skuli greiða 15 millj­ón­ir kr. í stjórn­valds­sekt til rík­is­sjóðs vegna brota á regl­um um gjald­eyr­is­mál.

Segist geta stutt mál sitt með staðreyndum upplýsingum

Már ítrekar í yfirlýsingu sinni að það sé satt að hann hafi kannað möguleikann á sáttaferli og hvort hægt væri að ljúka málinu þannig. Það hafi hins vegar komið í ljós að Seðlabankinn hafi ekki haft heimild til að setja málið í sáttaferli eins og það lá fyrir, enda hafi það talist vera meiri háttar brot í skilningi laga um gjaldeyrismál. Hann hefur áður sagt að Seðlabankanum hafi borið að leggja fram kæru í málinu.

Segist hann geta stutt mál sitt með þeim upplýsingum sem komi fram í yfirlýsingunni.

„Þar er að hluta til stuðst við minni, m.a. þar sem ég tek ekki upp mín símtöl enda er það ólöglegt án vitundar gagnaðila, og tíma tók að draga saman og staðreyna upplýsingar,“ segir Már.

Eftir að hafa rætt við Þorstein Má í síma sumarið 2012 segist Már hafa beðið framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlitsins að kanna þennan möguleika. Aflað hafi verið lögfræðiálits frá Gizuri Bersteinssyni hæstaréttarlögmanni um lagaheimildir Seðlabankans til þess að ljúka málum er varða brotum um gjaldeyrismál með sátt. Þar hafi komið fram að slík heimild sé til staðar en hún sé bundin af því að ekki sé um meiri háttar brot að ræða. Í slíkum tilfellum beri að vísa málum til lögreglu,

Tilkynnti Þorsteini niðurstöðuna í síma

„Á þessum tíma var frumrannsókn Seðlabankans á Samherjamálinu ekki lokið. Þegar leið að því um veturinn fór ég aftur að biðja um athugun á því að ljúka máli Samherja með sátt. Það varð til þess að ég átti fund með Gizuri Bergsteinssyni hrl. og framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlitsins til að fara yfir spurninguna á ný með tilliti til þess lögfræðiálits sem lá fyrir frá því í ágúst 2012 og niðurstaðna frumrannsóknarinnar.“

Segir Már þann fund hafa verið haldinn í mars eða snemma í apríl árið 2013.

„Eftir fundinn var ljóst að Seðlabankinn hafði ekki heimildir til að setja málið í sáttaferli eins og það lá fyrir enda taldist málið þá vera meiri háttar í skilningi laga um gjaldeyrismál. Þvert á móti var það beinlínis embættisskylda mín eins og lögin voru að senda málið áfram til sérstaks saksóknara. Ég tilkynnti Þorsteini Má í símtali þá niðurstöðu en við höfðum verið í símasambandi um stöðu málsins á fyrstu mánuðum ársins 2013.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK