15% samdráttur í sölu á fólksbílum

Heildarfjöldi seldra fólksbíla dróst saman um 15,6% á árinu.
Heildarfjöldi seldra fólksbíla dróst saman um 15,6% á árinu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Heildarfjöldi seldra fólksbíla árið 2018 var 17.974 sem er 15,6% minni sala en á síðasta ári. Bílgreinasambandið spáir því að á næsta ári seljist um 15.500 fólksbílar, sem er um 13,8% samdráttur frá árinu sem er að líða.

Söluaukning á rafmagns- og tengiltvinnbílum milli áranna var 15,8% og eru þeir 21% af heildarsölu ársins 2018. Því er ljóst að mikil spurn er eftir umhverfisvænum bílum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu.

Með auknu úrvali orkugjafa hefur þar af leiðandi dregið úr sölu bensín- og dísilfólksbíla. Heldur meiri samdráttur hefur verið í sölu dísil-fólksbíla en bensín-fólksbíla. Hlutafall dísil-fólksbíla í heildarsölu ársins 2018 var 37,9% samanborið við 41,7% í fyrra. Samdráttur í bensín-fólksbílum var 1,8% milli áranna eða úr 43,2% árið 2017 í 41,4% árið 2018. 

Þegar horft er til heildarsölu bílaleigubíla á árinu má sjá að skráningar í ár voru 6.680 fólksbílar samanborið við 8.196 fólksbíla árið 2017. Þarna er því um töluverðan samdrátt að ræða eða 18,5%.

Sala til almennings á árinu nam 11.084 fólksbílum en er það samdráttur upp á 13,9% milli áranna 2018 og 2017. Árið 2018 var það þriðja stærsta ef horft er til baka 10 ár í bílasölu og nokkuð sambærilegt árinu 2016 í fjölda seldra nýrra fólksbíla. Ef horft er til ársins 2016 þá er munur ársins í árs einungis 2,8% minni í sölu fólksbíla.

Þegar þessi ár eru borin saman má sjá að bílaleigur eru einna helst að draga úr kaupum fólksbíla milli áranna 2016 og 2018 eða um 18,1% en almenningur er aftur á móti auka kaup á nýjum fólksbílum um 9%. 

María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir í tilkynningunni að margir þættir hafi haft áhrif á sölu ársins. Síðari hluti ársins einkenndist af mikilli óvissu þegar beðið var eftir niðurstöðu varðandi breytinga á vörugjöldum ökutækja vegna nýrrar aðferðar við mælinga á útblæstri bíla. Bílar fóru að koma til landsins frá og með 1. september með ný mæligildi útblásturs sem leiddi til hækkunar á vörugjöldum en breyting á lögum tók ekki gildi fyrr en í lok nóvember til að koma til móts við þær hækkanir sem stöfuðu af þessari nýju mæliaðferð og þar af leiðandi hækkun á vörugjöldum.

Á sama tíma fór íslenska krónan að veikjast sem hafði svo aftur áhrif til hækkunar á verð bíla. Þrátt fyrir mjög góða sölu í umhverfisvænum bílum síðustu ár eru innflytjendur ökutækja að sjá fram á að eftirspurn verði umfram framboð á árinu 2019. Má því gera ráð fyrir að einstaklingar bíði með endurnýjun þar til hægt verður að bregðast við þeirri eftirspurn.“  

„Átak þarf í að endurnýja bílaflotann og er það gert með því að tryggja innflutning nýrra og minna mengandi ökutækja inn í landið. Endurgreiðsla fyrir förgun eldri bíla hefur ekki breyst í áraraðir þrátt fyrir tal um breytingar þar á. Hækkun á endurgreiðslu er hvati og greiðsla sem hægt er að nýta við kaup á nýjum bíl sem skilar sér aftur inn í ríkissjóð í formi vörugjalda og virðisaukaskatts og því löngu tímabært að endurskoða þá krónutölu sem fæst við afhendingu bíls til förgunar,“ segir María Jóna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK