Tveir nýir stjórnendur ráðnir hjá Völku

Kjartan Einarsson og Ívar Meyvantsson hafa verið ráðnir sem stjórnendur …
Kjartan Einarsson og Ívar Meyvantsson hafa verið ráðnir sem stjórnendur hjá Völku. Ljósmynd/Aðsend

Tveir nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til starfa hjá hátæknifyrirtækinu Völku, en fyrirtækið sérhæfir sig í fiskvinnslutækjum ýmiss konar. Ívar Meyvantsson tók nýverið við starfi vöruþróunarstjóra og Kjartan Einarsson hefur verið ráðinn í starf yfirmanns daglegra innkaupa, birgðastýringar og lagers á framleiðslusviði.

Í tilkynningu frá félaginu segir að vöruþróunarsviðið sé annað tveggja stærstu sviða innan fyrirtækisins og snýr starfsemi þess að hug- og vélbúnaðarþróun Völku. 

Ívar hefur víðtæka reynslu af nýsköpun og vöruþróun innan hátæknifyrirtækja og starfaði hann meðal annars um árabil í tengslum við lyfjaþróun í Bandaríkjunum. Hann var rekstrarstjóri bandaríska lyfjafyrirtækisins Invenra Inc. og framkvæmdastjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Mentis Cura ehf. Ívar er menntaður verkfræðingur og lauk doktorsprófi í heilbrigðisverkfræði frá Wisconsin-háskóla í Bandaríkjunum.

Kjartan hefur áralanga reynslu úr hátækniiðnaði og innkaupum, og undanfarin 15 ár vann hann við dagleg innkaup hjá Marel á Íslandi og stýrði þeirri einingu síðustu fjögur ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK