Aukinn halli á vöruskiptum

AFP

Fyrstu 11 mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 549 milljarða króna en inn fyrir tæpa 713 milljarða. Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því rúmum 163,9 milljörðum króna en á sama tímabili í fyrra var hallinn 152,8 milljarðar. Vöruviðskiptahallinn á tímabilinu janúar til nóvember er því 11,1 milljarði króna meiri en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 148,6 milljörðum króna, samanborið við 141,4 milljarða króna á sama tíma árið áður. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Í nóvember 2018 voru fluttar út vörur fyrir 53,8 milljarða króna og inn fyrir 72,5 milljarða króna fob (77,6 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob-verðmæti, voru því óhagstæð um tæplega 18,8 milljarða króna. Í nóvember 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í nóvember 2018 var því 7,9 milljörðum króna meiri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 18,2 milljörðum króna samanborið við 10,7 milljarða króna halla í nóvember 2017.

Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 72,6 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 15,2% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,1% hærra en á sama tíma árið áður. Hækkunina á milli ára má fyrst og fremst rekja til útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 39,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 19,2% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í öllum undirliðum sjávarafurða milli ára sem meðal annars má rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.


Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 83,7 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 13,3% á gengi hvors árs. Mestu munaði um innflutning á eldsneyti og unnum hrá- og rekstrarvörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK