Friðrik nýr forstjóri Viss

Friðrik Þór Snorrason.
Friðrik Þór Snorrason.

Friðrik Þór Snorrason er nýr forstjóri hjá Viss ehf. og verður einn af meðeigendum félagsins. Friðrik er í dag forstjóri Reiknistofu bankanna (RB) og lætur af störfum þar í lok janúar eftir átta ára starf hjá félaginu. 

Hann var framkvæmdastjóri tækni- og rekstrarþjónustu fyrirtækisins Skyggnis (nú hluti af Origo) 2008-2011 og áður framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Nýherja. Friðrik starfaði á árunum 2000-2003 sem forstöðumaður hagdeildar STRAX í Bandaríkjunum. Friðrik lauk BA-prófi í alþjóðasamskiptum frá University of Wisconsin í Bandaríkjunum 1994 og meistaraprófi í sama fagi frá London School of Economics í Englandi 1996.

„Viss er sprotafyrirtæki sem sett var á laggirnar í árslok 2014. Félagið býður tryggingar fyrir farsíma og er eina fyrirtækið á Íslandi sem býður upp á farsímatryggingar með lágri sjálfsábyrgð og víðtækri tryggingavernd. Tryggingar félagsins eru seldar með nýjum farsímum hjá farsímafélögunum og fleiri viðurkenndum söluaðilum.

Viss rekur einnig verkstæði fyrir farsíma og veitir þannig íslenskum tryggingafélögum, viðskiptavinum þeirra og farsímanotendum viðgerðarþjónustu og aðstoð við útskipti á skemmdum farsímum.

Viss er einnig viðurkenndur þjónustuaðili Apple á Íslandi og þjónustar Apple-farsíma og tölvur í þeirra nafni,“ segir í fréttatilkynningu en Guðmundur Pálmason er stjórnarformaður Viss. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK