Ráðin skrifstofustjóri SVÞ

Sara Dögg Svanhildardóttir.
Sara Dögg Svanhildardóttir.

Sara Dögg Svanhildardóttir hefur verið ráðin til SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu sem skrifstofustjóri og í umsjón með mennta- og fræðslumálum.  

Sara Dögg hefur, samkvæmt fréttatilkynningu, áralanga reynslu af stjórnun og menntamálum sem skólastjóri og við verkefnastjórnun grunnskólastarfs Hjallastefnunnar.

Hún er grunnskólakennari frá KHÍ og með frekara nám í verkefnastjórnun og mannauðsstjórnun.

Sara Dögg kom að uppbyggingu tveggja grunnskóla hjá Hjallastefnunni sem og stofnun og stjórnun Arnarskóla. Þess utan hefur Sara Dögg starfað sem ráðgjafi í menntamálum og haft umsjón með fræðslumálum fyrir ýmis félagasamtök. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK