Vöruskiptahallinn 174,4 milljarðar

mbl.is/Sigurður Bogi

Á árinu 2018 voru fluttar út vörur fyrir 602,2 milljarða króna en inn fyrir 776,6 milljarða (828,3 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því rúmum 174,4 milljörðum króna reiknað á fob-verðmæti.

Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 176,5 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn á árinu 2018 er því rúmlega 2,0 milljörðum króna lægri en í fyrra. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 159,3 milljörðum króna, samanborið við 161,7 milljarða króna á árinu 2017, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Í desember 2018 voru fluttar út vörur fyrir 53,1 milljarð króna og inn fyrir 64,1 milljarð króna fob (68,4 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob-verðmæti, voru því óhagstæð um tæplega 11,0 milljarða króna. Í desember 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 23,6 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í desember 2018 var því tæpum 12,7 milljörðum króna minni en á sama tíma árið áður. Hverfandi viðskipti voru með skip og flugvélar í desember og þau hafa því engin áhrif á vöruviðskiptahallinn í mánuðinum en í desember 2017 var vöruviðskiptahallinn án skipa og flugvéla 20,3 milljarðar króna.

Á árinu 2018 var verðmæti vöruútflutnings 82,5 milljörðum króna hærra en árið áður, eða 15,9% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 53,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,7% hærra en verðmæti í fyrra.

Hækkun á milli ára má fyrst og fremst rekja til útflutnings á áli en hlutfallsleg aukning milli ára var þó mest á liðnum aðrar iðnaðarvörur. Sjávarafurðir voru 39,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 21,7% hærra en árið áður. Aukning var í öllum undirliðum sjávarafurða milli ára sem meðal annars má rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.

Á árinu 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 80,5 milljörðum króna hærra en árið áður, eða 11,6% á gengi hvors árs. Mestu munaði um innflutning á eldsneyti og unnum hrá- og rekstrarvörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK