Fjórar konur sækjast eftir sæti

Hluthafafundur Icelandair í desember í fyrra.
Hluthafafundur Icelandair í desember í fyrra. mbl.is/Árni Sæberg

Ný stjórn Icelandair verður kjörin á aðalfundi félagsins næstkomandi föstudag.

Alls hafa sjö boðið sig fram til stjórnarsetu en fimm sitja í stjórn félagsins. Allir núverandi stjórnamenn, Guðmundur Hafsteinsson, Heiðrún Jónsdóttir, Ómar Benediktsson og Úlfar Steindórsson stjórnarformaður, bjóða sig fram til endurkjörs fyrir utan Ásthild­i Mar­gréti Ot­hars­dótt­ur.

 Framboð til stjórnar Icelandair Group á aðalfundi 8.mars nk.

  1. Guðmundur Hafsteinsson; kt. 290875-3319
  2. Guðný Hansdóttir; kt. 300167-3579
  3. Heiðrún Jónsdóttir; kt. 090769-4649   
  4. Ómar Benediktsson; kt. 221059- 4689
  5. Svafa Grönfeldt; kt. 290365-3769
  6. Úlfar Steindórsson; kt. 030756-2829
  7. Þórunn Reynisdóttir; kt.120560-5149

Guðmundur Hafsteinsson
Guðmundur Hafsteinsson leiðir vöruþróun Google Assistant hjá Google. Hann hóf störf hjá Google árið 2014 við samruna Google og Emu, félags sem hann stofnaði árið 2012. Áður en Guðmundur stofnaði Emu var hann framkvæmdastjóri hjá Siri og starfaði þar áfram eftir samruna við Apple. Þar á undan starfaði Guðmundur sem vörustjóri hjá Google við Google Maps fyrir farsíma og Google Voice Search. Guðmundur er með MBA-gráðu frá MIT og  B.Sc-gráðu í rafmagns- og tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Guðmundur hefur setið í stjórn Icelandair Group frá árinu 2018.

Guðný Hansdóttir.
Guðný Hansdóttir.

Guðný Hansdóttir

Guðný Hansdóttir var framkvæmdastjóri mannauðssviðs Innness 2014-2018 og mannauðsstjóri hjá Skeljungi 2009-2014. Áður var hún framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi hjá Pennanum Officeday, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Air Atlanta og forstöðumaður flugliða Icelandair frá 1999-2004. Guðný hefur setið í stjórn Parlogis og Mjallar Frigg og er stjórnarmaður Frumherja frá 2015. Guðný er með B.Sc-gráðu og MBA frá Florida Institute of Technology.

Heiðrún Jónsdóttir.
Heiðrún Jónsdóttir. mbl.is/Golli

Heiðrún Jónsdóttir

Heiðrún Jónsdóttir er lögmaður. Heiðrún er stjórnarmaður í Íslandsbanka og varaformaður stjórnar Lögmannafélags Íslands. Heiðrún var áður formaður stjórnar Lífeyrissjóðsins Gildis, Norðlenskra og íslenskra verðbréfa. Hún var áður í stjórn Símans hf. og Ístaks. Frá árinu 2006 og til 2012 var Heiðrún upplýsingafulltrúi Landssímans hf. og framkvæmdastjóri og meðeigandi á Lex lögmannstofu 2003-2005. Þá var hún framkvæmdastjóri lögfræði- og samskiptasviðs Hf. Eimskipafélags Íslands. Heiðrún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, héraðsdómslögmaður og hefur lokið stjórnendanámi frá IESE í Barcelona. Heiðrún hefur setið í stjórn Icelandair Group frá árinu 2018.

Ómar Benediktsson
Ómar Benediktsson er forstjóri Farice ehf. Hann er stjórnarmaður í Landsneti hf. og í Húsafell Resort ehf. Ómar hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum í ferðaþjónustu og flugrekstri síðastliðin 30 ár, meðal annars sem forstjóri Island Tours og hjá Íslandsflugi, Air Atlanta og SmartLynx, sem og setið í stjórnum margra félaga í greininni. Ómar er með Cand. Oecon-gráðu frá Háskóla Íslands. Ómar hefur verið stjórnamaður í Icelandair Group síðan 2017.

Svafa Grönfeldt.
Svafa Grönfeldt.

Svafa Grönfeldt

Svafa Grönfeldt er formaður stjórnar MIT DesignX sem er nýjasti viðskiptahraðall MIT-háskóla í Boston og starfar hún jafnframt við nýsköpunarsetur skólans. Hún er ein af stofnendum The MET Fund sem er fjárfestingasjóður fyrir sprotafyrirtæki á sviði hönnunar og tækni í Bandaríkjunum. Svafa hefur setið í stjórn Össurar síðan 2008. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Alvogen og þar áður sem rektor Háskólans í Reykjavík og aðstoðarforstjóri Actavis. Hún hefur lokið doktorsprófi frá London School of Economics í vinnumarkaðsfræðum.

Úlfar Steindórsson
Úlfar Steindórsson er forstjóri Toyota á Íslandi. Hann var forstjóri Primex ehf. á Siglufirði frá 2002-2004 og framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins frá 1999-2002.  Úlfar hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja á liðnum árum. Úlfar er með Cand.Oecon-gráðu frá Háskóla Íslands og MBA frá Virginia Commonwealth University. Hann hefur verið stjórnarmaður í Icelandair Group frá september 2010.

Þórunn Reynisdóttir.
Þórunn Reynisdóttir.

Þórunn Reynisdóttir
Þórunn Reynisdóttir er forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands. Hún hefur yfir þrjátíu ára reynslu af stjórnunarstörfum í ferðaþjónustu. Hún hefur meðal annars haft með höndum stjórnunarstörf hjá hótelum, ferðaskrifstofum og flugfélögum. Þórunn hóf feril sinn hjá Flugleiðum, hvar hún hefur varið yfir tuttugu og fimm árum af starfsævi sinni, m.a. sem stöðvarstjóri Flugleiða á Kastrup í Kaupmannahöfn, hótelstjóri Hótel Loftleiða og þá stýrði hún  sölumálum Hertz bílaleigunnar. Þórunn var forstjóri ferðaskrifstofunnar Destination Europe í Maine, Bandaríkjunum, átti og rak AVIS bílaleiguna á Íslandi og starfaði sem sölu og markaðsstjóri Iceland Express. Þá var hún um tíma ráðgjafi Isavia um markaðssókn í Bandaríkjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK