Helgi endurkjörinn formaður Samorku

Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, var endurkjörinn formaður Samorku.
Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, var endurkjörinn formaður Samorku.

Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, var í dag endurkjörinn formaður stjórnar Samorku á aðalfundi samtakanna, sem haldinn var á Grand hótel Reykjavík. Þá var Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, einnig endurkjörinn í stjórn samtakanna til tveggja ára.

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, var svo kosin í stjórn Samorku í fyrsta sinn og var hún kjörin til tveggja ára.

Í stjórn sitja jafnframt áfram þau Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, Jóhanna B. Hansen, bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar, og Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

Harpa Þuríður Böðvarsdóttir, Veitum, og Indriði Þór Einarsson, Skagafjarðarveitum, koma ný inn sem varamenn í stjórn Samorku. Áfram sitja sem varamenn þau Elías Jónatansson, Orkubúi Vestfjarða, Guðbjörg Marteinsdóttir, RARIK, og Hörður Arnarson, Landsvirkjun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK