Hjördís í nýtt starf hjá Krónunni

Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir.
Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir. Ljósmynd Birgir Ísleifur Gunnarsson

Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin nýr markaðsstjóri hjá Krónunni. Hún hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum og markaðsrannsóknum, samkvæmt fréttatilkynningu.

Undanfarin fimm ár hefur Hjördís starfað hjá Festi, fyrst sem markaðsfulltrúi Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals en nú síðast sem sérfræðingur í markaðsdeild Krónunnar. 

Hún er með MS-gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá HÍ og lærði stafræna markaðssetningu og viðskipti á netinu hjá Opna háskólanum í Reykjavík. Hjördís hefur jafnframt bakgrunn í viðskiptafræði frá HR.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK